Sælar stúlku-kindur................
Jæja þá er komið að litlu jólunum 2008 hjá okkur skvísum.....
Að þessu sinni (og reyndar öll hin) verða þau haldin í meyjaskemmunni hjá Lilju mánudaginn 29.des. kl:20:30 og er mjög mikilvægt að allar verða mættar fyrir 21:00.
Eða viljið þið hittast eitthvað fyrr eða??????
Við vorum að pæla í að ræða við Öldu og Davíð hvort það væri hægt að leigja sjóræningjahúsið fyrir einkasamkvæmi svo við gætum hitt kannski strákana eftir á en þeir eru með kryddsíld sama dag....hver er til í að fara í það og athuga þetta?????
Ég og Sibba erum að undirbúa svona smá gamanmál.....það væri mjög gott ef einhverjar mundu kannski finna upp á einum leik eða svo...............
Við erum nú ekki margar en gaman væri ef sem flestar gætu hjálpast að og gert þetta skemmtilegt og flott

En við Sibba vorum að pæla í því að þær sem ætla að taka þátt í gamaninu hvort þið væruð til í að borga 500kr. á mann og þá ætlum við að kaupa smá "verðlaun" í fljótandi formi þá...............og þær sem ætla að vera með þurfa að koma honum til okkar í kvöld (sunnudag) heim til Sibbu...við verðum þar
Svo er það gjöfin.....vorum við ekki bara að tala um gjöf fyrir 500 kr. muna að pakka henni inn og setja langt band á......(ohhh djö...ég var búin að kaupa gjöf í bænum en man núna ekkert hvar hún er....)
Svo eitt í viðbót....þema eru eitthverjar hugmyndir????? er ekki skemmtilegast að hafa eitthvað sem maður getur reddað sér ekki lit.....svona eins og í fyrra....t.d. bindi....ég og sibba vorum komnar með eina hugmynd.....túberað þema....vera allar viltar um hárið.....en endilega komið með hugmyndir...mjög mikilvægt að allar taki þátt svo í þemanu annað kvöld....
En endilega minnið allar á að skoða síðuna.....og verðum svo bara í bandi hér....
Hlakka til að sá ykkur....
Aldursforsetinn.....